Þjónusta
Löggildur rafverktaki
Hjá Rafsól starfa 7 þrautþjálfaðir rafvirkjar undir handleiðslu löggilts rafverktaka. Þjónustusvið Rafsólar sinnir öllum verkum hvort sem er stórum eða smáum, allt frá útskiptum á ljósaperum til uppsetningar á flóknum dyrasímakerfum
Áratuga reynsla
Starfsmenn Rafsólar hafa áratuga reynslu og sérhæft sig í endurnýjun raflagna í gömlum húsum, uppsetningu rafmagnstaflna, lögnum fyrir netkerfi og uppsetningu dyrasímakerfa. Rafsól leggur mikið upp úr vönduðum vinnubrögðum og þjónustum stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga á margvíslegan hátt.
Einstakar lausnir
Í samvinnu við viðskiptavini okkar finnum við einstakar lausnir sem henta hverjum og einum, því við teljum að vandamálin séu til að leysa þau og leggjum allt kapp á að uppfylla óskir viðskiptavina okkar fljótt og vel.
Þjónustusamningur
Rafsól býður húsfélögum upp á þjónustusamning varðandi eftirlit og umsjón sameigna í fjölbýlishúsum sem og stofnunum og fyrirtækjum.