Til varnar þjófum
Þjófavarnakerfi sem allir hafa efni á.
Fréttir af innbrotum inn á heimili fólks hafa aukist með hverju ári sem líður. Margir eru ónæmir fyrir slíkum fréttum en aðrir þakka fyrir að ekki hafi verið brotist inn á sitt heimili. Aðrir velta fyrir sér að láta setja upp öryggiskerfi en það eru ekki allir tilbúnir að leggja í kostnaðinn sem fylgir. Starfsmenn Rafsólar hafa ráðlagt viðskiptavinum sínum ýmislegt í gegnum tíðina til að fæla burt þjófa.
Sparperur með birtuskynjara.
Ódýr og áhrifarík aðferð er að setja sparnaðarperur með ljósnema í nokkur ljós eða lampa á heimilinu. Þegar skyggja fer úti kveikja perurnar sjálfkrafa á sér svo heimilið lýsist upp og virðist sem einhver sé heima. Ennfremur er góð hugmynd að setja slíkar perur í útiljós til að fæla óprúttna aðila frá útidyrunum auk þess að enginn vill standa í myrkri fyrir utan útidyrnar að leita að lyklinum svo ekki sé minnst á að finna skráargatið. Einnig er í boði bjartir ljóskastarar
Ljós tengd hreyfiskynjara.
Hreyfiskynjarinn kveikir á ljósinu þegar hann nemur hreyfingu manns og eru húseigendur hvattir til að skoða hvaða staðir utanhúss eru líklegir til að freista þjófa og setja á þeim stöðum upp slík ljós því ekkert fælir þjófa eins frá og að standa skyndilega í sviðsljósinu.
Ljós tengd við tímatengla.
Tímatenglar eru snjöll uppfinning. Maður stillir tímatengilinn með pinnum eða flipum á þann tíma sem maður vill kveikja ljós og síðan aftur þegar ljósið á að slokkna. Upplagt er að setja í samband við tímatengilinn hentugan lampa eða ljós sem lýsir upp heimilið og er þetta bæði þægileg og ódýr lausn. Á sumrin þegar sólin skín næstum allan sólahringinn er svo hægt að nota tengilinn til að setja kaffikönnuna í gang á morgnanna og fá sér kaffisopa þegar maður er kominn á fætur.
Þráðlaus þjófavörn með hreyfiskynjara.
Nokkrar gerðir eru til hjá Rafsól af einföldum hreyfiskynjurum með vælu sem er gangsett þegar heimilið er yfirgefið. Annað hvort er sleginn inn kóði eða notuð fjarstýring til að taka væluna af og er slíkur búnaður einfaldur í uppsetningu og gengur fyrir rafhlöðum. Einnig eru hægt að hafa samband við öryggismiðstöðvar og fá fullkomið þjófavarnakerfi af bestu gerð en það er kostnaðarsamara.
Auðvitað vilja allir verja sinn kastala og misjafnt hversu miklu er kostað til en algengasti og fyrirhafnaminnsti kosturinn er að byrja á að lýsa upp heimilið og fátt er notalegara en að koma heim eftir erilsaman dag og á móti manni tekur vel upplýst hús til að bjóða eiganda sinn velkominn heim.
Auðvitað vilja allir verja sinn kastala og misjafnt hversu miklu er kostað til en algengasti og fyrirhafnaminnsti kosturinn er að byrja á að lýsa upp heimilið og fátt er notalegara en að koma heim eftir erilsaman dag og á móti manni tekur vel upplýst hús til að bjóða eiganda sinn velkominn heim.